Ekki stækkun á Schengen.

Það er ekki rétt með farið að fjölgað hafi verið í Schengen hópnum. Þessi þrjú lönd hafa hingað til þurft að sækja um kostnaðarsamar og vandsóttar vegabréfsáritanir til að ferðast til Schengen og annarra landa. Nú geta menn bara sínt sín vegabréf. Þessi lönd munu ekki virka sem innganshlið til hið vegabréfslausa Schengen svæði. Allir sem fara inn og út úr þessum löndum þurfa að sýna gild vegabréf.
mbl.is Fjölgar í Schengen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt skal vera rétt

Þetta er ekki rétt með farið. Skotar hafa einnig leikið fjóra leiki, tapað fyrir Makedóníu og Hollendingum, gert jafntefli við Norðmenn og unnið Íslendinga.
mbl.is Sigurlíkur Íslands 17,54%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landamæradeila hvað...

Moggi - nú verður þú að vakna - Landamæradeilunni?
mbl.is Lausna leitað í landamæradeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska leiðin...

Þetta er bara ekki hægt ! - ef ekki þessi ráðagerð hleypir illu blóði í fólk og fær einhvern til að standa upp og rifta þessari sölu, þá verður hlegið hátt um gervöll norðurlönd. Við sjáum hér “prototypuna” af hvernig brennuvargarnir ætla að fara að þessu. Nýji Glitnir hefði átt að ábyrgjast rekstur þessara 19 verslanna um tíma á meðan virkilegt söluferli hefði verið sett í gang. Ég hef stuðning margra hér i Noregi um að meira hefði fengist fyrir “allan pakkann” en bara laun starfsmanna. Það er bullandi gangur á Apple i Noregi, og margir sem hefðu viljað skoða þetta mál. En íslenska leiðin var valin “gera þetta hratt” - eins og Lúðvík bullaði í Kastljósi á þriðjudaginn, svo hratt að engin nær að fylgjast með bulluganginum. Þetta er algjört glapræði og nú verður að stoppa svona vinnubrögð. Það er ekki bara aukin lánabyrgði og minnkandi kaupmáttur sem fer með folk á Íslandi þessa dagana - skortur á trausti, og reiði fólks í kjölfar aðgerða sem hér um ræðir skapar vonleysi og uppgjöf margra.


mbl.is Yfirlýsing frá Nýja Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágúst 2008

Eftirfarandi brot er tekið úr pistli sem Björgvin S. Sigurðsson viðskiptaráðherra skrifaði á heimasídu sinni þann 5. águst 2008, þessari síðu hefur nú verið lokað. Ef tónninn hefur verið sá sami í samtölunum hans við Darling í september- þá trúi ég Darling....:

"Aðstoðarmenn Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslensku bönkunum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að mynda ástæðu til að ætla að staðan tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.

Gagnrýnin hlýtur því að skoðast í því samhengi að a.m.k. tveir íslenskir bankar, Glitnir og Kaupþing, hafa hafi sókn inn á markað fyrir sparifé í Finnlandi, með svipuðum hætti og Landsbankinn hefur áður gert í Bretlandi. Þessi markaðssókn kemur sér vitanlega illa fyrir Nordea sem til þessa hefur ekki treyst sér til að bjóða jafn góð kjör og íslensku bankarnir bjóða.

Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum, sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslensku bankakerfið sé mjög stöndugt."


mbl.is Yfirlýsing viðskiptaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hroki Grikkja og meinntur stuðningur íslendinga.

Það fer frekar lítið fyrir heimsókn Geirs H.Haarde til Grikklands og Albaníu, en þar er ráðherran þessa dagana í opinberri heimsókn. Meira fer fyrir umræðunni um bruðl staðgengils Geirs, Þorgerðar Katrínar og dómgreindarleysis hennar við ákvörðun hennar um að skreppa si sona til Kína - aftur ! til að sjá einn handboltaleik.

En ferð Geirs til Grikklands hefði kannski átt að fá aðeins meiri athygli fjölmiðla. Þannig er að Grikkland hefur hafið heilmikla milliríkjadeilu við nágrannaland sitt, hið litla og nýja lýðveldið Makedóníu. Deilan ber keym af hroka stórþjóðarinnar sem skal knésetja lítinn nágranna - kosta hvað það kosta má. Og deilan, - jú hún snýst um nafnið Makedonia. Við upplausn gömlu Júgóslavíu í byrjun síðasta áratugar tók Makedónía upp gamla nafnið og kallaði sig Lyðveldið Makedónia. Við þessu brugðust Grikkir afar reiðilega og vildu meina að þeir ættu nafnið!? - en í norður Grikklandi liggur hérað sem heitir Makedónia. I rauninni var hér áður fyrr miklu stærra landsvæði sem hét Makedónia allt fra tímum Alexandres mikla. Á meðal íbúa Makedóníu er þetta mikið tilfinningamál. Lítil og ung þjóð sem er að byggja sig upp og reyna að komat i hóp Evrópuþjóða - þeir hafa sótt um inngöngu í NATO, og hyggjast sækja um aðild að EU, en allt þetta stoppa nú Grikkir og krefjast þess að landið breyti um nafn, annars muni þeir alltaf nota neitunarvald sitt í þessum félagssköpum Evrópskra þjóa.
Mér brá síðan þegar ég las yfirlýsingu fra forsætisráðherra Grikkja Costas Karamanlis eftir fund med Geir Haarde þar sem Geir Haarde á að hafa lýst yfir eindregnum stuðningi íslendinga við Grikki í deilu þessari. Hér er smáþjóðin og unga lýðveldið Ísland, sem alltaf hefur stutt aðrar smáþjóðir á alþjóðavettvangi í baráttu þeirra við meiri máttar, að styðja Grikki í hrokafenginni kröfu þeirra um að Makedónia skifti um nafn að því að þeir eigi nafnið!
Álíka og Finnland fengi ekki að kalla sig Finnland af því að það finnst hérað í Norður Noregi sem heitir Finnmörk.
Ég ætla að vona að hér sé einhver misskilningur á ferðinni sem hægt sé að leiðrétta, ég stórefast um að mál þetta hafi verið rætt í ríkisstjórninni og að þetta sé opinber afstaða íslands í þessari deilu.


Vegar Páll - frábær leikmaður

Nei það þykir afar skrítid hér i Noregi að Vegar Páll skuli ekki vera í Íslenska liðinu, einhver allra besti knattspyrnumaður Íslands þessa dagana. Vegar er i mjög góðu formi og ég trúi því ekki fyrr en ég sé það að hann ekki verði í liðinu gengn Norðmönnum. Vegar þekkir norska leikstílinn og leikmennina og yrði ógnun að hafa hann á leikmannalistanum.
mbl.is Veigar væri í byrjunarliði Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak!


Tónleikar þessir í Laugardalnum eru frábært framtak frábærra listamanna til stuðnings mikilvægum málstað. Ég fylgdist með tónleikunum á National Geographic eins og svo magir aðrir sem ekki gátu heimsótt Ísland þessa helgi.
Sú staðreynd að yfir 30.000 manns hafi lagt leið sína í dalinn til að njóta tónanna og til stuðnings á málefninu er einnig frábært hjá fámennri þjóð. Lagasmíðar og boðskapur bæði Bjarkar og Sigur Rós vekja mikla athygli víða um heim þessa dagana. Nýasta plata Sigur Rós er ein mest selda plata beggja vegna Atlandshafsins síðustu viku og hefur sú plata fengið mikið hól i erlendri pressu. Björk hefur á hljómleikaferð sinni sagt hvað hún meinar um valdnýðslu og nýlendupólitík, og hennar áralanga barátta fyrir verndun náttúru Íslands hefur gert rödd hennar áhrifamikla nú þegar umhverfisvernd og auðlindanýting er á allra vörum.
Sigur Rós og Björk eru flottir sendiherrar og frúr sem þjóðin á að vera stolt af.
Það er síðan skondið að lesa línur sumra þeirra sem hér hafa skrifað á undan mér af sama tilefni. Þetta eru einhverskonar álverjar, sem ekki hafa nein rök í sínum penna annað en að svívirða fólk með ásökunum um eiturlyfjaneyslu og geðveiki !, og að folk eigi að leita sér læknis !? Annar álverji skrifar þó bara um "fríkað lið" en virðist þó sammála hinum ofstópanum.
Það hafa allir rétt á að bera fram sinn boðskap, Sumir hafa þá hæfileika að geta pakkað því inn í 6 tíma langa hljómleika á heimsmælikvarða, aðrir geta bara rakkað niður og svívirt. Ef að kalla á til lækni hér þá held ég viti hvert á að senda hann.
mbl.is Óður til náttúrunnar í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímaskekkja

Nú berast tíðindi um að það að tveir af burðarstólpum íslensks ferðaiðnaðar - Icelandair og Blá lónið séu að berjast í bökkum. Til þurfa að koma stóruppsagnir og hagræðingar af ýmsu tagi ef rekstur þessara fyrirtækja eigi að geta lifað af. Á sama tíma undirbúa fluguferðastjórar verkföll sem geta gefið þessum fyrirtækjum og öðrum náðarsprautuna. Þegar þessi tvö fyrirtæki sem eru í öndvegi þessa iðnaðar á Íslandi þurfa að herða ólina er öruggt að mörg önnur innan samma geira sjá fram á erfiða tíma. Einmitt þessvegna eru þessar aðgerðir flugumferðastjóra tímaskekkja, með fullri virðingu fyrir rétti launamannsins - verkfallssréttinum. En það er nú einu sinni svo að aðgerðir sem þessar sem flugumferðastjórar boða geta komið verst niður á þeim sjálfum þegar upp er staðið. Félagskapurinn hefur litla samúð meðal almennings við þessar aðgerðir, enda meintar til að skaða mest fyrirhuguð sumarfrí fólks, og í ofanálag verða til þess að til muni koma fjöldauppsagnir í ferðamálageiranum allmennt - þar sem erftitt verður að flytja fólk til og frá landinu, og seinkanir, aflýsanir og þarafleiðandi pirringur á medal ferðamanna á eftir að draga dilk á eftir sér.
mbl.is Með umfangsmestu uppsögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur Rós !

Það er virkilega gaman að sjá að á fyrsta útgáfudegi liggur nýa plata Sigur Rós á topp 10 á itunes sölulistum um alla Evrópu. Sigur Rós er í dag í 2. sæti í Danmörku i 3. sæti í Englandi, 3. sæti í Svíþjóð og Noregi, 5. sæti í Þýskalandi. Sigur Rós er að skipa sér í raðir stórsveita heimsins. Nýa platan - Med suð í eyrum við spilum endalaust - getur slegið öll sölumet einstakrar íslenskra plötu, að meðtöldum plötum Bjarkar. Til hamingju Sigur Rós með frábæra plötu.
mbl.is Gagnrýnendur lofa Sigur Rós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband